Fréttasafn

12.04.2010

Viðbrögð stjórnar til vetrarkorthafa vegna óvenju slæms vetrar

Nú er stysti vetur í sögu Skíðasvæðanna senn á enda. 

Síðustu tvo vetra hefur orðið gríðarleg uppsveifla í skíða- og brettagreininni á Íslandi.  Þar fara saman nokkur atriði en þau helstu eru þessi:  Efnahagskreppa skall á og í kjölfarið hefur fólk almennt sótt í viðskipti heima við og þar var skíðaiðkunin ekki undanskilin.  Fólk sleppti eða hætti við utanlandsferðir á skíði og fór þess í stað á skíði heimafyrir.  Hitt atriðið er að á sama tíma og efnahagskreppan skall á þjóðinni voru veðurguðirnir mjög hliðhollir Skíðasvæðum höfuðborgarsvæðisins.  T.d. var veturinn 2007-8 með 119 opnunardaga og 75.000 gesti en veturinn 2008-9 með 87 opnunardaga og 93.000 gesti.  Sömuleiðis hefur gestum í Hlíðarfjalli fjölgað verulega á 2 árum eða c.a. 100%.  Gestir í Hlíðarfjalli árið 2008 voru 52.000 en í ár stefnir í að gestafjöldinn verði 100.000 sem er met þar á bæ.

Í Bláfjöllum og Skálafelli er sagan fyrir nýliðinn vetur, öllu verri.  Snjókoma á suðvesturhorni landsins var með allra minnsta móti, það litlu að ekki var hægt að opna nema 5 daga fyrir almenning í Bláfjöllum og 0 daga í Skálafelli.  Þetta skilar stysta vetri í sögu Skíðasvæðanna.

Í ljósi þessa hefur stjórn Skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins ákveðið að koma til móts við þá aðila sem keyptu vetrarkort fyrir veturinn 2009-10 með þeim hætti að veita þeim 50% afslátt frá almennu gjaldskrárverði veturinn 2010-1011.  Gjaldskrárverð næsta vetrar verður ákveðið á haustmánuðum 2010.

Það er von allra að með þessu muni skíða- og brettafólk halda áfram að treysta á góðan vetur og fjárfesta í vetrarkortum í framtíðinni.  Veturinn í vetur er sá fyrsti þar sem kaup á vetrarkortum hefur ekki borgað sig en stysta opnun fyrir utan veturinn í vetur er 28 dagar.  Vetrarkortin borga sig vanalega upp með 7,2-10,5 skíðadögum á vetri, allt eftir því hvort vetrarkort séu keypt á tilbðsverði sem er alltaf í gangi í desember eða á almennu gjaldi sem tekur við í janúar.

Geymið því kortin vel og sjáumst á næsta vetri.

Magnús Árnason
Framkvæmdastjóri Skíðasvæðanna

Til baka