|
Í Hlíðarfjalli er sannkölluð skíðaparadís rétt við bæjardyrnar. Þar eru frábærar aðstæður til skíða- og snjóbrettaiðkunnar. Lyfturnar á svæðinu geta samanlagt flutt 4.440 manns á klst. en samfelldur hæðarmunur á skíðabrekkunum er um 500 metrar. Skíðastaðir voru byggðir á árunum 1955-1964 en rekstur hófst 1962. Húsið stendur í 506 metra hæð yfir sjávarmáli. Strýta stendur í um 700 metra hæð yfir sjávarmáli. Þar er greiðasala og salerni fyrir gesti í Hlíðarfjalli. Vetraríþróttamiðstöð Íslands er starfrækt í Hlíðarfjalli en hún var stofnuð á Akureyri með staðfestingu samstarfs menntamálaráðuneytis, Akureyrarbæjar, Íþrótta- og olympíusambands Íslands og Íþróttabandalags Akureyrar, 18. mars 1998. Sími: 462 2280 Bréfasími: 461 2030 Símsvari: 878 1515 hlidarfjall@hlidarfjall.is http://www.hlidarfjall.is/
|