Skíða- og Brettaskólinn

Skíðaskólinn

Skíðaskóli Bláfjalla er starfræktur um helgar fyrir börn á aldrinum 5-14 ára.
Verð á námskeið er 6.000kr. innifalið lyftukort.
Þeir nemendur sem þurfa skíðaútbúnað geta leigt hann fyrir 3.000kr.
Tvö námskeið eru í boði yfir daginn:
kl. 10:30 - 12:30 og kl. 13:00 - 15:00.

Opnað er fyrir skráningu á þriðjudögum kl. 12 á hádegi fyrir næstu helgi.
Aðeins er skráð fyrir eina helgi í einu vegna ófyrirsjáanleika á veðri. Ef það er lokað fellur námskeiðið niður svo vinsamlegast skoðið heimasíðu skíðasvæðisins áður en haldið er af stað. Ef það er lokað þá fellur skráningin niður og þá þarf að endurbóka fyrir næsta námskeið.

Aðeins er um byrjendanámskeið að ræða og verður því aðeins notast við töfrateppið, kaðallyftuna og diskalyftur fyrir byrjendur.

Systkinaafsláttur er 500kr. fyrir hvern nemanda.
Mikilvægt er að nemendur mæti 30 mínútum áður en námskeið hefst.
Þeir sem ekki eru mættir þegar skóli hefst tapa skráningunni.

Fyrirspurnir og breytingar má senda með tölvupósti á skolinn@skidasvaedi.is

Athugið að það eru tvö námskeið í boði yfir daginn.
Vinsamlegast hafið á hreinu hvort námskeiðið þið eruð að skrá á.

Brettaskólinn

Brettaskóli Bláfjalla er starfræktur um helgar fyrir börn á aldrinum 5-14 ára.
Verð á námskeið er 6.000kr. innifalið lyftukort.
Þeir nemendur sem þurfa skíðaútbúnað geta leigt hann fyrir 3.000kr.
Tvö námskeið eru í boði yfir daginn:
kl. 10:00 - 12:00 og kl. 12:30 - 14:30.