Hægt er að panta einkakennslu í Bláfjöllum, bæði á skíðum og snjóbretti.
Kennslan er í boði á opnunartíma á virkum dögum kl. 14-21 og eftir skíðaskólann um helgar kl. 15-17. Til þess að bóka kennslu skal senda tölvupóst á skolinn@skidasvaedi.is þar sem tekið er fram hvaða dagsetningu og tíma leitast er eftir, ásamt nafni og símanúmeri. Vinsamlegast athugið að vegna íslenskrar veðráttu getur þurft að aflýsa og endurbóka með stuttum fyrirvara.
| 1 klst | 2klst | |
|---|---|---|
| 1 manns | 13.100 kr. | 23.100 kr. |
| 2 manns | 22.100 kr. | 40.600 kr. |
| 3 manns | 31.100 kr. | 57.200 kr. |
| 4-6 manns | 46.700 kr. | 86.300 kr. |
ATH. leigubúnaður er ekki innifalinn en verðskrá í leigunni má nálgast hér.
