
Bláfjallaskáli
Í skálanum er miðasala, veitingasala, snyrting, skíðaleiga auk þess sem þar eru skrifstofur skíðasvæðins og sjúkrastofa. í Bláfjallaskála er ekki boðið upp á gistingu. Upplýsingasími Bláfjalla er 530 3000.

Breiðabliksskáli
Við Kóngsgil er skíðaskáli Breiðabliks. Breiðabliksskálinn býður upp á veitingasölu og snyrtingu. Í skálanum er gistiaðstaða fyrir allt að 100 manns. Skálinn er leigður út allt árið. Sími 898 1003.

Skíðaskálinn Hengill
Skálinn sem er nýr og stórglæsilegur er í eigu skíðadeilda ÍR og Víkings. Í honum er veitingasala og snyrting um helgar. Skíðaskálinn Hengill er til útleigu allt árið um kring fyrir félagssamtök, vinnuhópa, skóla og alla aðra sem áhuga hafa. Hann rúmar í allt 90 manns í gistingu og þar er mjög góð eldunaraðstaða og tveir góðir matsalir sem hægt er að opna á milli. Upplýsingar um útleigu í símum 5877080 ÍR og 5813245 Víkingur eða hengillskidaskali@gmail.com

Skíðaskáli Ármanns
Skíðaskáli Ármanns er við Suðurgil og Sólskinsbrekku. Þar er boðið upp á veitingasölu, snyrtingu og gistiaðstöðu fyrir hópa allt að 60 manns. Póstfang: jon.thor@armenningar.is

Skáli Skíðagöngufélagsins Ulls
Skáli Skíðagöngufélagsins Ulls er sunnan undir hólnum vestan við Suðurgil. Þar er boðið upp á aðstöðu fyrir skíðagöngufólk til að bera á skíði og borða nesti og við skálann fara fram æfingar í skíðagöngu svo og námskeið fyrir almenning. Félagið á takmarkað magn af búnaði til skíðagöngu sem hægt er að leigja, bæði fyrir börn og fullorðna. Engar snyrtingar eru í skálnum en við bílaplanið eru snyrtingar á vegum Bláfjalla. Upplýsingar á www.ullur.is

Framskálinn
Í Eldborgargargili er Framskálinn sem rekin er af skíðadeild Fram. Í skálanum geta skíðahópar fengið gistingu. Gistirými er fyrir 70 manns. Sími 6642148 eða sigginik@hotmail.com