Staðan í Bláfjöllum
- Opið verður í Bláfjöllum í dag frá kl. 14-21Hér hafa verið ýmisleg veður síðast liðna daga og erum við núna að setja allar lyftur í gang.Göngubraut er klár. Leirurnar, hringur í kringum hól og upp með nýju girðingu (Grunnbraut).Einhverjir skólahópar munu mæta í dag.Staðan í brekkum er misjöfn. Þar sem er framleiddur snjór er í góðu lagi, en td. á suðursvæðinu lítur það ekki eins vel út.Gríðarleg ísing hefur verið á lyftum og sérstaklega stólalyftum. Við höfum verið að berja af síðan kl. 06 í morgun og eru bæði Drottningin og Kóngurinn komnar í gang.Hálka er á veginum, en hann verður sandaður fyrir opnun.
ATH. lækkað verð í rútuna komið í 2000 kr en var 4000.
Og munum að vera með hjálma.
Heimatorfa
- Drottningin, 4 sæta Opnar kl 14:00
- Kóngurinn, 4 sæta Opnar kl 15:00
- Lilli klifurmús
- Patti broddgöltur Opnar kl 11:00
- Töfrateppi Opnar kl 14:00
- Amma mús Opnar kl 11:00
- Hérastubbur Opnar kl 11:00
- Hringekja
- Dew dýnan
- Púkinn Park
Suðursvæði
- Bangsadrengur
- Mikki refur
- Kormákur afi
- Jón Oddur
- Jón Bjarni
- Gosinn, 4 sæta
Gönguleiðir
- Leiruhringur (1 km) Opnar kl 14:00
- Grunnbraut (2.5 km) Opnar kl 14:00
- Fimman (5 km)
- Strompahringur (6.5 km)
- Kerlingardalur (12 km)
- Upp með nýju girðingu Opnar kl 14:00
- Lítill snjór
Opnunartímar Bláfjalla
14:00 – 21:00
17:00 – 20:00
10:00 – 17:00
Svæðið
Vinsælustu skíðaleiðirnar í Bláfjöllum eru Norðurleiðin og Kóngsgilið. Hægt að komast í þær með bæði Kónginum (nýja stólalyftan) og Drottningunni (gamla stólalyftan). Við Kónginn er einnig Lilli Klifurmús (Borgarlyftan) og Brettalyftan fyrir Mohawk’s parkið. Fyrir ofan Bláfjallaskála eru byrjendalyfturnar Amma Mús og Hérastubbur, ásamt leiktækjum fyrir börn. Fyrir neðan Bláfjallaskála eru auðveldustu brekkurnar fyrir byrjendur með Töfrateppið og kaðallyftuna Patta Broddgölt og eru þær gjaldfrjálsar.
Sunnar komum við svo að Sólskinsbrekku og Suðurgili. Í Sólskinsbrekku er toglyftan Mikki refur, byrjendalyftan Kormákur Afi, tvíburalyfturnar Jón Oddur og Jón Bjarni og byrjendalyftan Amma dreki. Auðvelt er að komast á milli Sólskinsbrekku og Kóngsgils með því að fylgja troðinni braut sem tengir svæðin, eða með kaðallyftunni Bangsadreng sem er við Mikka Ref.
Skíða- og brettafólk
Fyrir byrjendur mælum við einna helst með að halda sig í nágrenni skálanna, þar sem auðveldustu lyfturnar eru.
Við Norðurleiðina er Mohawk’s Parkið sem er snjógarður með stökkpalla fyrir snjóbretta- og freestyle skíðafólk. Hægt er að komast að ofanverðu úr Kónginum og Drottningunni, og svo er sér toglyfta sem þjónustar snjógarðinn.
Við viljum hvetja alla til að fara varlega í snjóhengjum sem eru utan hins skipulagða skíðasvæðis vegna snjóflóðahættu.
Samkvæmt öryggisreglum skíðasvæða á brettafólk alltaf að vera með annan fótinn fastan í lyftunum og aldrei má láta bretti eða skíði renna frá sér.
Slys og óhöpp
Ef þið verðið vitni að slysi á skíðasvæðinu gefið ykkur sem fyrst fram við starfsmenn, eða hringið í 112 og sérþjálfaðir vettvangsliðar munu bregðast við.
Minniháttar meiðsli meðhöndlum við fúslega í Bláfjallaskála, en þá er gengið inn um starfsmannainngang á norðurgafli hússins. Starfsmönnum okkar er ljúft og skylt að veita þá aðstoð sem þeir eru færir um að veita hverju sinni.
Lyftur
Kóngsgil
Drottning
Árgerð: 2022
Flutningsgeta: 2200 (menn/klst)
Lengd: 1.068m
Fallhæð: 215m
Kóngur
Árgerð: 2004
Flutningsgeta: 2200 menn/klst
Lengd: 762m
Fallhæð: 223m
Brettalyfta
Árgerð: 1989
Flutningsgeta: 665 (menn/klst)
Lengd: 595m
Fallhæð: 102m
Lilli klifurmús
Árgerð: 1974
Flutningsgeta: 703 (menn/klst)
Lengd: 231m
Fallhæð: 74m
Patti broddgöltur
Árgerð: 2003
Flutningsgeta: 1500 (menn/klst)
Lengd: 100m
Fallhæð: 10m
Töfrateppið
Lengd: 100m
Fallhæð: 10m
Amma mús
Árgerð: 1986
Flutningsgeta: 717 (menn/klst)
Lengd: 199m
Fallhæð: 21m
Hérastubbur
Árgerð: 1992
Flutningsgeta: 718 (menn/klst)
Lengd: 293m
Fallhæð: 22m
Kárafold
Fyrir 10 ára og yngri
Einn á hverjum púða
Suðurgil
Gosi
Árgerð: 2022
Flutningsgeta: 2200 (menn/klst)
Lengd: 473m
Fallhæð: 155m
Jón Oddur
Árgerð: 1978
Flutningsgeta: 663 (menn/klst)
Lengd: 389m
Fallhæð: 106m
Jón Bjarni
Árgerð: 1999
Flutningsgeta: 663 (menn/klst)
Lengd: 389m
Fallhæð: 106m
Mikki refur
Árgerð: 2003
Flutningsgeta: 695 (menn/klst)
Lengd: 552m
Fallhæð: 91m
Kormákur afi
Árgerð: 1991
Flutningsgeta: 653 (menn/klst)
Lengd: 281m
Fallhæð: 48m
Bangsadrengur
Flutningsgeta: 1500 (menn/klst)
Lengd: 90m
Fallhæð: 10m