Nú hafa verið sett upp aðgangsstýringarhlið á göngusvæðið í Bláfjöllum. Þetta er frábær nýjung sem bætir þjónustu við gönguskíðafólk til muna því nú getur gönguskíðafólk fyllt á skidata kortin sín áður en lagt er af stað uppeftir og brunað beint í sporið. Hvergi þarf að koma við á leiðinni til að kaupa miða.
Að auki munu hliðin loksin færa okkur raunsannar upplýsingar um þann fjölda sem sækir göngubrautirnar.