Sveitarfélögin Reykjavíkurborg, Mosfellsbær, Seltjarnarnesbær, Kópavogsbær, Hafnarfjarðarbær og Garðabær, sem sameiginlega reka skíðasvæði höfuðborgarsvæðisins undirrituðu 7. maí 2018 samkomulag sem felur í sér að á næstu árum verður ráðist í endurnýjun á skíðasvæðunum.
Samkvæmt samkomulaginu verður ráðist í endurnýjun og uppsetningu þriggja stólalyfta í Bláfjöllum og endurnýjun stólalyftu í Skálafelli. Ennfremur verður settur upp búnaður til snjóframleiðslu í Bláfjöllum og Skálafelli. Samhliða þessum verkefnum verður unnið að áframhaldandi uppbyggingu á skíðgöngusvæði og bættum aðstæðum fyrir skíðagöngufólk.
Þessi verkefni eru fyrri áfangi af tveimur við heildaruppbyggingu skíðasvæðanna sem byggja á tillögu að framtíðarsýn um uppbyggingu og rekstur þeirra til ársins 2030.
