Skíðareglurnar

Tíu reglur Alþjóðaskíðasambandsins (FIS)

Öllum skíða og brettamönnum ber að fylgja svokölluðum skíðareglum og við alvarleg brot á þeim ber að vísa gestum af svæðunum.

1. Tillitssemi

Skíða- eða snjóbrettamaður skal hegða sér á þann hátt að hann stofni ekki öðrum í hættu, valdi óþægindum eða skaða.

2. Stjórn á hraða

Skíða- eða snjóbrettamaður skal ávallt hafa fullt vald á hraðanum. Hann skal ekki fara hraðar en geta hans leyfir og aðstæður hverju sinni, svo sem veður, færi og fjöldi í brekkunum.

3. Að velja sér leið

Sá sem kemur niður brekku eða aftan að öðrum skíða- eða brettamönnum skal velja sér leið þannig að hann stofni ekki þeim sem fyrir framan eru í hættu.

4. Framúrtaka

Fara má framúr eða framhjá öðrum skíða- eða snjóbrettamanni fyrir ofan hann eða neðan, hægra eða vinstra megin, að því tilskildu að sá sem farið er framúr eða framhjá hafi allt það svigrúm sem hann þarf.

5. Að fara inn í eða vera á merktri braut

Sá sem fer inn í merkta braut eða leggur aftur af stað eftir að hafa stansað eða sveigt upp á við skal líta vel í kring um sig og ganga úr skugga um að hann stofni hvorki sjálfum sér né öðrum í hættu.

6. Stöðvað í brekku

Skíða- eða snjóbrettamaður skal ekki stansa þar sem braut er þröng eða útsýni takmarkað nema brýna nauðsyn beri til. Ef hann fellur skal hann færa sig úr brautinni eins fljótt og hann getur.

7. Gengið upp eða niður brekku

Skíða- eða snjóbrettamenn sem fara fótgangandi upp eða niður brekku skulu ganga í jaðrinum á merktum brautum.

8. Leiðbeiningar á skiltum

Skíða- eða snjóbrettamenn skulu fara í einu og öllu eftir leiðbeiningum á skiltum sem hafa verið sett upp í brekkunum.

9. Aðstoð

Ef slys ber að höndum skulu allir veita þá aðstoð sem þeir geta.

10. Að gefa sig fram eftir slys

Allir skíða- eða snjóbrettamenn sem verða vitni eða lenda í slysi skulu gefa sig fram án tillits til þess hvort þeir bera ábyrgð á slysinu eða ekki.

 

Leiðbeiningar fyrir toglyftur

Myndið röð

Vinsamlegast myndið einfalda röð í diskalyftur og ekki taka fram úr. Snjóbrettafólk fer úr aftari bindingunni.

Farið í lyftu

Haldið á stöfunum í ytri hendinni og komið ykkur tímanlega fyrir. Snúið ykkur inn að lyftunni og grípið diskinn með lausri hendi.

Á leiðinni upp

Ekki setjast á diskinn. Standið upprétt, hallið ykkur aðeins upp að og látið lyftuna draga ykkur. Snjóbrettafólk setur lausa fótinn á milli bindinga.

Ekki beygja

Haltu þér í lyftusporinu undir miðjum lyftuvírnum og ekki sviga í lyftunni. Ekki sleppa of snemma þar sem þú getur ógnað öryggi þíns og annarra í lyftunni.

Ef þú dettur

Komdu þér úr lyftusporinu eins fljótt og þú getur. Aðrir í lyftunni geta oft ekki beygt framhjá.

Farið úr lyftu

Slepptu disknum beint áfram, ekki til hliðar. Ekki fara of langt. Komdu þér úr lyftusporinu í rétta átt sem fyrst.

 

Leiðbeiningar fyrir stólalyftur

Komið að lyftu

Vinsamlegast myndið röð og ekki ýta öðrum. Farið eftir leiðbeiningum starfsfólks. Ekki skilja eftir auð pláss til að lágmarka biðtíma. Snjóbrettafólk losar aftari fót.

Farið í lyftu

Komdu þér tímanlega fyrir og haltu á báðum stöfum í annarri hendi. Horfðu aftur og fylgstu með stólnum. Lokaðu öryggisgrindinni eftir að þú sest, meðan þú fylgist með sessunaut.

Í lyftunni

Vinsamlegast sestu kyrr, haltu skíðunum ofan á grindinni og ekki sveifla þér. Ekki kasta hlutum úr lyftunni eða reykja vegna umhverfis- og öryggissjónarmiða.

Ef lyftan stoppar

Haldið ró ykkar jafnvel þó lyftan stoppi í lengri tíma. Bíðið eftir upplýsingum frá starfsfólki. Að stökkva úr lyftunni getur verið lífsógnandi þar sem hæðarskynjun úr lyftunni blekkir verulega.

Áður en stigið er úr

Komdu þér fyrir tímanlega. Ekki lyfta öryggisgrindinni fyrr en þú kemur að skiltinu og lyftu framendanum á skíðunum upp.

Farið úr lyftu

Farðu úr lyftunni réttu megin og farðu strax úr afstíginu. Þeir sem stöðva þar ógna öryggi þeirra sem á eftir koma.

 

Snjótroðarar

Á opnunartíma

Ef snjótroðari þarf að aka um svæðið á opnunartíma skal sýna fyllstu varúð og halda sér í hæfilegri fjarlægð.

Eftir lokun

Öll almenn umferð um skíðasvæðið er óheimil þegar svæðið er lokað, en þá fer fram vinna á troðurum og vélsleðum.

BLÁTT BLIKKLJÓS

Ef blátt ljós blikkar er öll umferð um allt svæðið stranglega bönnuð. Snjótroðari með spilvír úti getur verið banvænn þar sem vírinn getur skotist til án viðvörunar.

Vinsamlegast athugið!

Athugið að allur akstur vélsleða og jeppa utan vega á skíðasvæðunum er stranglega bannaður.

Einnig er lausaganga hunda stranglega bönnuð í skíðasvæðunum.

Til skíðasvæðanna heyra einnig þau svæði sem lögð eru undir gönguskíðabrautir.

Njótum hreina loftsins. Reykingar eru bannaðar á skíðasvæðinu.