Skíðagöngusvæðið hefur farið stækkandi með auknum vinsældum og býður upp á leiðir við allra hæfi. Brautum er haldið opnum og vel troðnum eftir aðstæðum hverju sinni og eru valdar leiðir upplýstar á kvöldin. Gangan er frábær hreyfing sem hentar öllum.
Tilvalin bílastæði fyrir gönguskíðafólk er vestur af skíðaskála Ármanns og til móts við Breiðabliksskála.
Skáli Skíðagöngufélagsins Ulls er sunnan undir hólnum vestan við Suðurgil. Þar er boðið upp á aðstöðu fyrir skíðagöngufólk til að bera á skíði og borða nesti og við skálann fara fram æfingar í skíðagöngu svo og námskeið fyrir almenning. Félagið á takmarkað magn af búnaði til skíðagöngu sem hægt er að leigja, bæði fyrir börn og fullorðna.
Salernisaðstaða er við bílastæðið á milli Gosans og skála Ulls.
Búnaður, áburður, göngutækni og staðsetningar – bæklingur.pdf
Staðan í Bláfjöllum
Vertíðinni lokið í Bláfjöllum
Það tekur okkur sárt að tilkynna hér með að vertíðinni sé lokið í Bláfjöllum þennan veturinn. Það kom enginn snjór um helgina eins og spár gerðu okkur vonir um en allar skíðaleiðir eru á einum eða fleiri stöðum í sundur ásamt lyftusporum eftir hlýindakaflann í lok mars og byrjun apríl. Það er því ljóst að páskarnir eru ekki inni í ár og því er þetta niðurstaðan. Þetta var veturinn sem eiginlega aldrei kom. Opnunardagar voru 36 en þrátt fyrir fáa opnunardaga var þetta fjórði aðsóknarbesti veturinn frá upphafi. Samkvæmt hliðatalningu komu 78.166 gestir í lyftur og á skíðagöngusvæði komu 2.079 gestir.
Fyrstu 12-15 dagarnir í opnun þennan veturinn voru algerlega í boði snjóframleiðslunnar en annað árið í röð er hún að sanna gildi sitt.
Starfsfólk Bláfjalla þakkar kærlega fyrir veturinn.
- Opið
- Lokað
Heimatorfa
- Drottningin, 4 sæta
- Kóngurinn, 4 sæta
- Lilli klifurmús
- Patti broddgöltur
- Töfrateppi
- Amma mús
- Hérastubbur
- Hringekja
- Dew dýnan
- Púkinn Park
Suðursvæði
- Bangsadrengur
- Mikki refur
- Kormákur afi
- Jón Oddur
- Jón Bjarni
- Gosinn, 4 sæta
Gönguleiðir
- Leiruhringur (1 km)
- Grunnbraut (2.5 km)
- Fimman (5 km)
- Strompahringur (6.5 km)
- Kerlingardalur (12 km)







