- Púðursnjór: Laus þurr snjór, snjóað hefur í logni.
- Troðinn púðursnjór: Laus þurr snjór sem hefur verið troðinn.
- Troðinn þurr snjór: Nýr snjór eða þurr foksnjór.
- Harðpakkaður snjór: Nokkurra daga gamall þurr snjór sem hefur verið troðinn nokkrum sinnum.
- Troðinn blautur snjór: Snjóboltasnjór.
- Harðfenni: Snjórinn hefur blotnað og fryst aftur, ekki búið að snjóa lengi.
- Unnið harðfenni: Mulinn snjór, búið er vinna upp brekkurnar með troðara.
- Vorfæri: Grófkorna snjór, oft á tíðum hart yfirborð að morgni en sólbráð er líður á daginn.
- Framleiddur snjór: Oftast nefndur gervisnjór en það er villandi þar sem um snjó er að ræða sem framleiddur er með því að sprauta fínum vatnsúða upp í loftið með sérstökum snjóbyssum.